15.1.2012 | 14:26
Lagið #6
Algjörlega í samræmi við þennan góða sunnudag...
Kveðja
Guðný Maríanna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2012 | 13:40
Lagið #3
Goðin 
Bestu kveðjur
Guðný Maríanna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2012 | 12:49
Lagið #2
Bestu kveðjur
Guðný Maríanna
Bloggar | Breytt 8.1.2012 kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2012 | 12:42
Lagið #1
Bestu kveðjur
Guðný Maríanna
Bloggar | Breytt 8.1.2012 kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.3.2010 | 20:52
Hin 90 ára gamla Regina Brett frá Ohio...
- skrifaði þessi 45 atriði um það sem lífið hafði kennt henni:
1. Lífið er ekki sanngjarnt, en það er samt ljúft.
2. Þegar þú ert í vafa, taktu þá bara lítið skref.
3. Lífið er of stutt til að eyða tíma í að hata einhvern.
4. Vinnan þín mun ekki sjá um þig þegar þú verður veik(ur). Vinir þínir og fjölskylda munu gera það. Vertu því í sambandi við þau.
5. Greiddu kreditkortareikninginn þinn í hverjum mánuði.
6. Þú þarft ekki að vinna öll deilumál - samþykktu að vera ósammála.
7. Gráttu með einhverjum. Það er betra en að gráta einn.
8. Það er allt í lagi að reiðast út í guð.- Hann þolir það.
9. Safnaðu fyrir elliárunum og byrjaðu með fyrsta launaseðlinum.
10. Þegar kemur að súkkulaði, þá er mótstaða árangurslaus.
11. Semdu frið um fortíðina, þannig að hún eyðileggi ekki samtíðina.
12. Það er í lagi að láta börnin þín sjá þig gráta.
13. Berðu ekki þitt líf saman við annarra. Þú hefur ekki hugmynd um hvernig þeirra líf er raunverulega.
14. Ef samband þarf að vera leynilegt, þá áttu ekki að vera í því.
15. Allt getur breyst á augabragði. En hafðu ekki áhyggjur.
16. Dragðu andann djúpt að þér - það róar hugann.
17. Losaðu þig við allt sem ekki er nýtilegt, fallegt eða skemmtilegt.
18. Það sem ekki drepur þig gerir þig bara sterkari.
19. Það er aldrei of seint að hafa skemmtilega barnæsku. En sú seinni er alveg undir þér komin og engum öðru.
20. Þegar kemur að því að sækjast eftir því sem þú elskar við lífið, taktu þá aldrei NEI sem svar.
21. Brenndu kertin, notaðu fínu rúmfötin, farðu í fínu nærfötin. - Sparaðu þetta ekki fyrir sérstök tilefni. - Í dag er sérstakt tilefni.
22. Undirbúðu þig ávallt vel. - Láttu svo strauminn taka þig.
23. Vertu óvenjuleg(ur) í dag. - Bíddu ekki eftir gamals aldri til að klæða þig í fjólubláan lit!
24. Mundu að mest áríðandi kynfærið er heilinn.
25. Enginn ræður yfir hamingju þinni nema ÞÚ!
26. Rammaðu inn allar svokallaðar þjáningar með orðunum . . . . "Mun þetta skipta einhverju máli eftir 5 ár?”
27. Hafðu lífið alltaf að leiðarljósi.
28. Fyrirgefðu öðrum allt.
29. Það sem aðrir hugsa um þig kemur þér alls ekki við.
30. Tíminn læknar svo til allt….. Gefðu tímanum tíma.
31. Hversu gott eða slæmt sem ástandið er….. þá mun það breytast.
32. Taktu þig ekki of hátíðlega….. enginn annar gerir það.
33. Trúðu á kraftaverk.
34. Guð elskar þig vegna þess hver hann er, ekki vegna þess sem þú gerðir eða gerðir ekki.
35. Endurskoðaðu ekki lífið….. Vertu til staðar og taktu þátt í því.
36. Að verða gamall er betra en hinn kosturinn. - Að deyja ungur.
37. Börnin þín fá bara eina barnæsku.
38. Allt sem skiptir máli í lokin er að þú hafir elskað.
39. Farðu út á hverjum degi. - Kraftaverk bíða alls staðar.
40. Ef við myndum öll kasta áhyggjum okkar í stafla og sæjum stafla hinna….. þá myndum við hrifsa okkar til baka.
41. Öfund er tímasóun. - Þú hefur nú þegar allt sem þú þarfnast.
42. Það besta er ef til vill einnig ókomið.
43. Það skiptir ekki máli hvernig þér líður. - Farðu á fætur, klæddu þig og sýndu þig.
44. Láttu undan.
45. Lífið er ekki skreytt með slaufum. - En samt er það gjöf!
Kveðja Guðný M
Bloggar | Breytt 8.1.2012 kl. 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.2.2010 | 23:03
A 1000 kisses deep....
Kveðja Guðný M
Bloggar | Breytt 8.1.2012 kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.12.2009 | 20:04
Pís of keik....
Það er ekki erfitt, að gera konu hamingjusama, þú þarft bara að vera:
1. vinur
2. félagi
3. ástmaður
4. bróðir
5. faðir
6. húsbóndi
7. yfirmaður
8. rafvirki
9. trésmiður
10. pípari
11. handlaginn
12. skreytimeistari
13. stílisti
14. sérfræðingur í kynlífi
15. mannþekkjari
16. sálfræðingur
17. hagfræðingur
18. reiknimeistari
19. góður huggari
20. góður hlustandi
21. skipuleggjari
22. góður faðir
23. snyrtilegur
24. samúðarfullur
25. sportlegur
26. hlýr
27. skemmtilegur
28. aðlaðandi
29. snillingur
30. fyndinn
31. hugmyndaríkur
32. mjúkur
33. sterkur
34. skilningsgóður
35. þokkafullur
36. prúður
37. metnaðarfullur
38. hæfileikaríkur
39. þolgóður
40. skynsamur
41. trúr
42. ábyggilegur
43. ástríðufullur
..og gleymir aldrei að:
44. gefa henni gjafir reglulega
45. fara með henni að versla
46. vera heiðarlegur
47. vera örlátur
48. að stressa hanna ekki
49. horfa ekki á aðrar konur
og um leið þá verðurðu líka að:
50. veita henni mikla athygli, og hugsa ekki mikið um sjálfan þig
51. gefa henni allan tíma sem hún þarf
52. gefa henni mikið frelsi, ekki hafa áhyggjur af því hvert hún fer
Það er mjög áríðandi:
53. að gleyma aldrei:
1. afmælisdögum
2. brúðkaupsdögum
3. plönum sem hún hefur ákveðið
TIL AÐ GERA KARLMANN HAMINGJUSAMANN :
1. Gefa honum að borða góðan mat
2. Sjá til að hann fara reglulega að sofa (ekki einn)
3. og þegja svo að hann geti horft á leikinn í sjónvarpinu í friði
Kveðja Guðný M 
Bloggar | Breytt 8.1.2012 kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2009 | 19:35
Öndin....
Önd kemur inn á bar og spyr barþjóninn: "Áttu brauð"?
Barþjónn: "Nei".
Önd: "Áttu brauð"?
Barþjónn: "Nei".
Önd: "Áttu brauð"?
Barþjónn: "Nei við erum ekki með neitt brauð".
Önd: "Áttu brauð"?
Barþjónn: "Nei, við erum ekki með neitt fjandans brauð hér"!
Önd: "Áttu brauð"?
Barþjónn: "NEI! Eru heyrnarlaus eða hvað!? Við erum ekki með neitt djö****** brauð hér! Ef þú spyrð mig einu sinni enn þá negli ég helv*** gogginn á þér fastan við barborðið, óþolandi fáviti"!!
...
Önd: "Áttu nagla"?
Barþjónn: "Nei".
Önd: "Áttu brauð"?
Kveðja Guðný M
Bloggar | Breytt 8.1.2012 kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2009 | 23:15
You and I
Kveðja Guðný M
Bloggar | Breytt 8.1.2012 kl. 03:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2009 | 17:36
Snilld...
Skylduhlustun á afmælisdaginn! Æðisleg útgáfa af laginu, must að hlusta til enda. 
Kveðja Afmælisbarnið 
Bloggar | Breytt 8.1.2012 kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2009 | 10:34
Baráttan innra með okkur
Kvöld eitt, sagði gamall Cherokee indíáni barnabarni sínu, ungum dreng, frá baráttu sem á sér stað innra með fólki. Hann sagði: "Sonur minn, baráttan er á milli tveggja "úlfa" innra með okkur öllum.
ANNAR ER ILLUR. Það er reiði, öfund, afbrýðissemi, böl, eftirsjá, græðgi, hroki, sjálfsmeðaumkvun, sekt, gremja, minnimáttarkennd, lygar, falskt stolt og að vera fullur af yfirlæti og egói.
HINN ER GÓÐUR. Það er gleði, friður, ást, von, rósemi, auðmýkt, fyrirgefning, góðvild, góðfýsi, hluttekning, örlæti, sannleikur, samúð og trú."
Drengurinn hugsaði um þetta nokkra stund og spurði síðan afa sinn: Hvor úlfurinn vinnur?" Gamli maðurinn svaraði, einfaldlega:
"SÁ SEM ÞÚ NÆRIR."
Kveðja Guðný M 
Bloggar | Breytt 8.1.2012 kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.8.2009 | 14:02
Vert er að læra...
Lexía 1:
Maður fer í sturtu rétt í þann mund, er konan hans er að ljúka sinni og dyrabjallan hringir.
Konan vefur um sig handklæði og hleypur til dyra.
Hún opnar hurðina og úti stendur Biggi úr næsta húsi.
Áður en henni tekst að koma upp orði segir Biggi: "Ég gef þér hundraðþúsund ef þú lætur handklæðið falla".
Hún hugsar sig um smá stund og lætur svo handklæðið falla og stendur nakin fyrir framan Bigga. Eftir nokkrar sekúndur lætur Biggi hana fá hundraðþúsund og fer.
Konan vefur handklæðinu aftur utan um sig og fer aftur inn.
Þegar hún kemur inn á bað spyr eiginmaðurinn: "Hver var þetta?"
"Þetta var Biggi í næsta húsi", svarar hún.
"Frábært", segir maðurinn, "nefndi hann eitthvað um þessi hundraðþúsund sem hann skuldar mér?"
Boðskapur sögunnar:
Ef þú deilir mikilvægum upplýsingum varðandi lán og áhættu með hluthöfum tímanlega geturðu verið í aðstöðu til að koma í veg fyrir óþarfa afhjúpun
Lexía 2:
Prestur bauð nunnu far. Hún settist inn og krosslagði fætur, sem varð til að bera fót hennar.
Presturinn missti næstum stjórn á bílnum. Eftir að hafa náð stjórninni aftur, strauk hann hendinni laumulega upp eftir fæti hennar.
Nunnan sagði þá: "Mundu eftir Orðskviðunum 10:4".
Presturinn dró að sér hendina, en þegar hann skipti um gír strauk hann hendinni aftur upp eftir fæti hennar.
Aftur segir nunnan: "Mundu eftir Orðskviðunum 10:4".
Presturinn afsakaði sig og sagði: "Fyrirgefðu systir, holdið er veikt".
Er þau renna í hlað við klaustrið andvarpar nunnan þunglega og fer sína leið.
Þegar presturinn kemur í kirkjuna flettir hann upp Orðskviðunum 10:4. Þar stóð: " Snauður verður sá, er með hangandi hendi vinnur, en auðs aflar iðin hönd".
Boðskapur sögunnar:
Ef þú ert ekki vel upplýstur í starfi þínu gætirðu misst af stórkostlegum tækifærum
Lexía 3:
Sölumaður, ritari og deildarstjóri eru á leið í mat þegar þau finna fornan olíulampa.
Þau nudda lampann og út kemur töfraandi. Andinn segir: "Ég veiti hverju ykkar eina ósk".
"Ég fyrst! Ég fyrst!", segir ritarinn. "Ég vil vera á Bahamaeyjum á hraðbát algerlega áhyggjulaus". Og púff! Hún er horfin.
"Næst ég! Næst ég!", segir sölumaðurinn. "Ég vil vera á Hawaii að slaka á með einkanuddara og endalausar birgðir af Pina Colada og ástinni minni". Og púff! Hann er horfinn.
"Allt í lagi, það er komið að þér", segir andinn við deildarstjórann.
Deildarstjórinn segir: "Ég vil að þessi tvö verði komin aftur á skrifstofuna eftir mat".
Boðskapur sögunnar:
Alltaf láta yfirmanninn tala fyrst.
Lexía 4:
Örn sat í tré og gerði ekki neitt.
Lítil kanína sá örninn og spurði hann: "Get ég líka setið eins og þú og gert ekki neitt?"
Örninn svaraði: "Auðvitað, því ekki".
Svo kanínan settist á jörðina fyrir neðan örninn og hvíldist. Allt í einu birtist refur og stökk á kanínuna og borðaði hana..
Boðskapur sögunnar:
Ef þú ætlar að sitja og gera ekki neitt skaltu gera það mjög mjög hátt uppi.
Lexía 5:
Kalkúnn var að tala við bola.
"Ég vildi að ég gæti komist á topp þessa trés, en ég hef bara ekki kraft til þess".
"Nú, því nartarðu bara ekki í delluna mína", svaraði boli, "hún er full af næringarefnum".
Kalkúnninn kroppaði í delluna og komst að því að það veitti honum í rauninni styrk til að ná neðstu grein trésins.
Næsta dag, eftir að hafa nartað í aðeins meiri kúadellu, komst hann á næstu grein. Að lokum eftir fjóra daga sat kalkúnninn stoltur á toppi trésins.
Bóndi nokkur tók fljótt eftir honum og skaut hann niður.
Boðskapur sögunnar:
Della kemur þér kannski á toppinn, en hún heldur þér ekki þar.
Kveðja Guðný M 
Bloggar | Breytt 8.1.2012 kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.4.2009 | 09:33
Vissir þú?....
Það tekur matinn 7 sekúndur að fara frá munni og ofan í maga.
Hár af höfði manns getur haldið þrem kílóum.
Lengdin á lim mannsins er jöfn lengd þumalsins, margfaldaðri með þremur.
Lærbeinið er hart sem steinsteypa.
Hjörtu kvenna slá hraðar en hjörtu karla.
Á hvorum fæti höfum við þúsundir baktería.
Konur blikka augunum tvöfalt oftar en karlar.
Við notum 300 vöðva bara til að halda jafnvægi á meðan við stöndum.
Konur eru nú búnar að lesa allan textann.
Karlar eru enn að skoða á sér þumalinn !!!!
Kveðja Guðný M
Bloggar | Breytt 8.1.2012 kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.4.2009 | 18:08
Ég öskra...
Kveðja Guðný M öskurapi og ísæta......
p.s. ég er ekki öskurapi í alvörunni en ég er í alvöru svaðaleg ísæta.... jummí jummí
Bloggar | Breytt 8.1.2012 kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)







